Pétur Ben. – Ævisaga <br><small><I>Jakob F. Ásgeirsson</i></small></p>

Pétur Ben. – Ævisaga
Jakob F. Ásgeirsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
5.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
5.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Pétur Benediktsson (1906–1969) setti á sinni tíð mikinn svip á íslenskt þjóðlíf. Hann var sonur þjóðskörungsins Benedikts Sveinssonar og bræður hans létu mjög að sér kveða: Sveinn í sjávarútvegi og Bjarni í stjórnmálabaráttunni. Um Pétur spunnust ótal sögur enda sópaði að honum og gamansemi hans var þjóðkunn.

Að loknu námi gerðist Pétur frumherji í utanríkisþjónustu hins unga lýðveldis. Hann var einatt á örlagaríkum tímum á hverjum stað – hann var í Madríd á Spáni þegar borgarastyrjöldin geisaði, í London þegar Þjóðverjar létu rigna sprengjum á borgina og í Moskvu á miðjum Stalínstímanum. Hann ferðaðist um stríðshrjáð lönd Mið- og Austur-Evrópu upp úr seinna stríði og gerði viðskiptasamninga. Á eftirtstríðsárunum í París tók hann þ.átt í að útfæra Marshall-aðstoðina. Eftir að heim kom varð Pétur bankastjóri Landsbankans og síðar þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn.

Jakob F. Ásgeirsson notar hér ýmsar heimildir sem ekki hafa áður komið fyrir almenningssjónir, þar á meðal bréf sem fóru á milli bræðranna, Péturs og Bjarna. Um leið og lesandinn kynnist hér skemmtilegum og svipmiklum manni gefst ómetanleg innsýn í íslenska stjórnmálasögu og tíma þegar nútímasamfélag var að mótast hér á landi.

Innbundin – 415 bls. + 48 bls.

Útgáfuár: 1998