
Yngismeyjar (Little Women) eftir bandaríska rithöfundinn Louisu May Alcott er ein vinsælasta skáldsaga síðari tíma.
Bókin byggir að hluta á æsku höfundarins og segir uppvaxtarsögu fjögurra systra — hinnar fögru og dygðugu Möggu, strákastelpunnar Jóu, hinnar blíðlyndu Betu og ofdekruðu Önnu litlu.
Hamingjusöm tilvera þeirra fer úr skorðum þegar fjárhagur fjölskyldunnar hrynur. Í sama mund er faðir systranna kallaður í herinn, en sagan gerist í skugga bandaríska borgarastríðsins á 19. öld.
Nokkru síðar fer móðir þeirra að hjúkra föðurnum. Systurnar fjörmiklu þurfa þá að takast á við lífið upp á eigin spýtur.
Einstaklega hugljúf og skemmtileg saga sem hefur heillað kynslóðir lesenda, eða allt frá því að hún kom fyrst út árið 1868.
Páll Skúlason þýddi.
Innbundin – 198 bls.
Útgáfuár: 2014