Yfirbót <br><small><i> Viveca Sten </i></small></p>

Yfirbót
Viveca Sten

4.499 kr
4.499 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

MORÐIN Í ÅRE 

Tilnefnd til sænsku glæpasagnaverðlaunanna 2023

Rétt fyrir páska finnst athafnakonan Charlotte Wretlind myrt á hrottalegan hátt í svítu sinni á fjallahóteli í Åre. Morðið vekur óhug á svæðinu. Fljótlega kemur í ljós að fórnarlambið hefur tengsl við frægt fjallahótel í Storlien, niðurnítt skíðasvæði sem einu sinni naut mikilla vinsælda.

Lögreglumennirnir Daniel Lindskog og Hanna Ahlander stjórna rannsókn málsins þar sem samskiptaerfiðleikar, samskiptaerfiðleikar, sambandsslit og sárar bernskuminningar koma við sögu.

Samtímis reynir Hanna að höndla tilfinningar sínar og Daniel að takast á við reiðina sem hefur staðið honum fyrir þrifum. 

Yfirbót er þriðja bókin í hinni æsispennandi seríu MORÐIN Í ÅRE. Fyrri bækurnar tvær, Helkuldi og Daladrungu, hafa fengið frábærar viðtökur.

Vivica Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkur hennar um Sandhamn-morðin sló í gegn víða um heim og eftir honum voru gerðir mjög vinsælir sjónvarpsþættir

Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.

„Spenna á heimsmælikvarða. ... frábær lesning ... einn af okkar allra bestu glæpasagnahöfundum." – Kapprakt, blogg

„Það er dýpt í sögunni sem ég elska, fjallaumhverfið og norðlæga andrúmið er heillandi ... Þetta er sería sem ég læt ekki fram hjá mér fara.“ – Basilica, blogg

„Viveca Sten skrifar glæpasögur í hæsta gæðaflokki. Hún leggur mikla alúð við persónusköpun, tvinnar saman ólíka söguþræði án þess að það bitni á spennunni allt til hádramatískra endaloka.“ – Sænska glæpasagnaakademían

Kilja – 458 bls.

Útgáfuár: 2024