Við skulum ekki vaka <br><small><i>Heine Bakkeid</i></small></p>

Við skulum ekki vaka
Heine Bakkeid

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Thorkild Aske heldur með systur sinni til Íslands að heimsækja aldraðan föður þeirra, Úlf, sem glímir við krabbamein. Úlfur er mikill umhverfissinni og á að baki litríka ævi í endalausu stríði við íslensk stjórnvöld.

Á Íslandi sogast Thorkild inn í morðmál sem tengjast umhverfisvernd og virkjanaframkvæmdum. Æsilegir leikar berast um Reykjavík, Vesturland, Strandir, Norðurland og hálendið. Ískyggilegir draugar úr fortíð íslenskra deilna um umhverfismál láta á sér kræla.

Við skulum ekki vaka er þriðja bókin í magnþrungnum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrstu bækurnar tvær – Ég mun sakna þín á morgun og Hittumst í paradís – hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.

Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.

 Magnús Þór Hafsteinsson þýddi.

„Hinn nýi Jo Nesbö.“ – Verdens Gang

„Æðisleg bók ... Frábær og hrikalega spennandi glæpasaga.“ –Titeln

„Áhrifamikil og stórfengleg glæpasaga ... Ekki hægt að leggja hana frá sér ... Sjaldséður snilldarhöfundur ... Mjög vel skrifuð ... Ískaldur hrollurinn hríslaðist um mig ...“ –Bygdabladet

Kilja – 447 bls.

Útgáfuár: 2022