Í þessari nafntoguðu skáldsögu segir frá ungum manni, Antoine Roquentin, sem virðist eiga í nokkrum brösum með eigin tilveru. Í áhrifaríkum dagbókarfærslum skráir hann óvægið tilfinningar sínar og skynjanir. Upphaflega átti verkið að heita La Melancholie eða Þunglyndið, en útgefandanum leist ekki á blikuna og stakk upp á Velgjunni í staðinn. Eftir sem áður er nóg af þunglyndi í verkinu og þá helst af ætt „heimshryggðar“ (Weltschmerz) sem á til að sækja á unga menn sem ekkert amar að, einskonar lúxusdepurð. Fyrir vikið er í Velgjunni að finna margar athuganir sem eiga erindi við æskufólk sem „tíminn vill ei tengja sig við“, þar á meðal er upplifunin fræga sem tengist rótum kastaníutrésins í skemmtigarðinum og hefur fengið áþekkan sess í bókmenntavitund Frakka og magðalenukakan hjá Marcel Proust.
Pétur Gunnarsson íslenskaði og ritaði inngang.
Jean-Paul Sartre (1905-1980) var tvímælalaust kunnasti höfundur Frakka á tuttugustu öld, heimspekingur, bókmenntafræðingur, skáldsagnahöfundur, smásagnahöfundur, leikskáld og einhver mesti áhrifamaður í frönsku stjórnmála- og menningarlifi á sinni tíð. Meðal kunnustu verka hans eru heimspekiritin L´être et le néant og Critique de la raison dialectique, skáldsögurnar Velgjan og Les Chemins de la Liberté (Vegir frelsisins), fjögurra binda skáldsagnabálkur sem út kom á árunum 1945–1949. Að auki var Sartre mikilvirkt leikskáld, en meðal verka sem sett hafa verið upp eftir hann hérlendis má nefna Fangana í Altona, Flekkaðar hendur og Lokaðar dyr. Árið 1964 kom út sjálfsævisagan Les Mots(Orðin), en það ár voru Sartre veitt Nóbelsverðlaunin í bókmenntum sem hann hafnaði. Hann lést árið 1980 og er talið að um 50 þúsund manns hafi fylgt honum til grafar um götur Parísarborgar, fjölmennasta líkfylgd síðan Victor Hugo leið.
Pétur Gunnarsson (f. 1947) er einn kunnasti rithöfundur þjóðarinnar. Að loknu stúdentsprófi lagði hann stund á í heimspeki í Frakklandi, jafnframt ritstörfum. Hann hefur sent frá sér á annan tug skáldsagna, ljóðabækur, ævisögur, hugleiðingar, greinar og pistla, rit af sjálfsævisögulegum toga, sönglagatexta og þýðingar, auk efnis fyrir útvarp og sjónvarp. Meðal þekktari verka hans eru ljóðabókin Splunkunýr dagur, skáldsögurnar Punktur punktur komma strik, Persónur og leikendur, Hversdagshöllin og Myndin af heiminum, sem og hinar nýstárlegu ævisögur ÞÞ - Í fátæktarlandi og ÞÞ – Í forheimskunarlandi. Um þessar mundir vinnur hann að hliðstæðu verki um Halldór Laxness og hefur HKL – ástarsaga þegar litið dagsins ljós. Pétur hefur sömuleiðis verið mikilvirkur þýðandi fagurbókmennta á borð við Frú Bovary eftir Gustave Flaubert, Leiðina til Swann eftir Marcel Proust, Regnskógabeltið raunamædda eftir Claude Lévi-Strauss og Játningarnar eftir Jean-Jacques Rousseau.
Innbundin – 281 bls.
Útgáfuár: 2026