Undir yfirborðinu – Norska laxeldisævintýrið<br><small><i>Kjersti Sandvik</i></small></p>

Undir yfirborðinu – Norska laxeldisævintýrið
Kjersti Sandvik

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Laxeldi í sjókvíum hefur verið stundað við Noreg í um hálfa öld og telst nú einn af máttarstólpum norsks atvinnulífs. Laxeldið hefur treyst byggð í dreifbýli og leitt til ofsagróða þeirra sem að því standa. En margvíslegur umhverfsivandi hefur hlotist af laxeldinu í Noregi. Gríðarlegt magn af laxalús og laxaúrgangi hefur farið í hafið, mjög mikið af eldislaxi hefur sloppið úr kvíum og blandast villtum laxi, auk þess sem sjúkdómar í eldisfiskinum hafa reynst erfiðir viðureignar. Stórfyrirtæki í norsku laxeldi hasla sér nú völl við Ísland. Þau beita sömu eldisaðferðum hér og í Noregi.

Í þessari bók segir norski blaðamaðurinn Kjersti Sandvik sögu norska laxeldisævintýrisins. Hún lýsir bæði því sem vel hefur tekist og þeim vandamálum sem hlotist hafa af uppbyggingu laxeldis í Noregi.

Þetta er bók sem enginn áhugamaður um þjóðfélagsmál, atvinnulíf og hreina íslenska náttúru getur látið fram hjá sér fara.

Magnús Þór Hafsteinsson þýddi.

Kilja – 398 bls.

Útgáfuár: 2020