Þrír tímar <br><small><i>Anders Roslund</i></small></p>

Þrír tímar
Anders Roslund

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Kyrrlátan morgun í Stokkhólmi er yfirlögregluþjóninninn Ewert Grens kallaður út í líkhús þar sem líkum hefur skyndilega fjölgað um eitt í læstri geymslu. Hvernig mátti það vera?

Piet Hoffmann, sem hefur á víxl verið flugumaður sænsku lögreglunnar í hrottafengnum glæpahringjum eða á flótta undan réttvísinni, tekst á við stórt verkefni í framandi heimsálfu þar sem mannslíf eru einskis virt.

Heima í Svíþjóð bíður fjölskylda Piets í ofvæni eftir að heyra um afdrif hans. Öryggi fjölskyldunnar í Svíþjóð reynist ótryggt og brátt standa synirnir tveir frammi fyrir því að þurfa að berjast fyrir lífi sínu.

Þrír tímar skilja á milli lífs og dauða!

Sænskur háspennutryllir af bestu gerð eftir höfund Þriggja sekúndna og Þriggja mínútna.

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

„Æsispennandi söguþráður— glæpasaga þar sem ógnin fer í hæstu hæðir.“ – Dagens Nyheter

„Sænskur kirmmi eins og þeir gerast bestir.“ – Literatursiden

„Einstök glæpasaga, frábærlega vel skrifuð og trúverðug, sem á beint erindi í samtímann. Persónusköpun og staðháttalýsingar eru framúrskarandi.“ – BT

„Ewert Grens-serían verður betri með hverri bók og Þrír tímar er sú allra besta hingað til.“ – New York Journal of Books

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

Kilja – 460 bls.

Útgáfuár: 2020