Þegar við vorum Rómverjar <br><small><i> Matthew Kneale</i></small></p>

Þegar við vorum Rómverjar
Matthew Kneale

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Þegar Hannah tilkynnir óvænt að fjölskyldan flytji til Rómar eru börnin hennar, Lawrence og Jemima litla, mjög spennt. Að flytja til Rómar er sannarlega ævintýri, ekki síst fyrir strák sem hefur heillast af sögum um forna keisara og páfadóm. Systkinin hjálpa til við að fylla bílinn af öllu því mikilvægasta sem þau eiga – og svo ekur mamma þeirra af stað ...

Áleitið sálfræðidrama þar sem hinn níu ára gamli Lawrence, sem býr yfir visku langt umfram aldur, berst fyrir því að halda fjölskyldunni saman þegar öllu sem hann þekkir er snúið á hvolf.

Breski rithöfundurinn Matthew Kneale er meðal annars höfundur verðlaunabókarinnar English Passengers sem talin er ein af 25 bestu skáldsögum þessarar aldar.

Ragnar Hauksson íslenskaði.

„Nístandi, áleitin og yndisleg skáldsaga.“ Guardian

„Sérlega áhrifamikil.“ Sunday Times

„Efnismikil og grípandi.“ The Times

Kilja – 273 bls.

Útgáfuár: 2026