Þegar Kína gerir árás <br><small><I>Andreas Fulda</i></small></p>

Þegar Kína gerir árás
Andreas Fulda

4,799 kr
4,799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Þegar Taívan fellur: Ógnvekjandi sviðsmynd!

Árið 2027. Kínversk orrustuþota hrapar eftir hættulega loftfimleika í taívönsku loftrými. Í kjölfarið fyrirskipa ráðamenn í Peking árás á Taívan. Bandaríkin, klofin vegna innanlandspólitískra átaka, grípa til varna – en allt of seint. Kína hefur þá þegar innlimað Taívan með stuðningi Rússlands, Írans og Norður-Kóreu.

Afleiðingarnar á alþjóðavísu eru skelfilegar: Bandaríkin og Kína berjast um yfirráð í heiminum, þriðja heimsstyrjöldin blasir við og efnahagur Evrópusambandsríkja er í frjálsu falli. Þýskaland verður sérstaklega illa úti vegna mikilla efnahagstengsla við Kína.

Í þessari sviðsmynd greinir þýski stjórnmálafræðingurinn Andreas Fulda hugsanlegar afleiðingar kínverskrar innrásar í Taívan. Jafnframt bendir hann á leiðir til að koma í veg fyrir slík átök.

Björn Bjarnason íslenskaði.

Kilja – 198 bls.

Útgáfuár: 2026