Illvirki í lífi drengs, sem ólst upp á Sandhamn-eyju í heimsstyrjöldinni fyrri, hefur hörmulegar afleiðingar hundrað árum síðar þegar ung stúlka hverfur sporlaust á eyjunni.
Syndlaus er þriðja bókin í röð hinna geysivinsælu glæpasagna sem gerast í Sandhamn, einni af sumarleyfisperlum skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm. Fyrstu bækurnar tvær, Svikalogn og Í innsta hring, fengu afbragðs viðtökur íslenskra lesenda.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
#1 Sænski bóksölulistinn
„Nýja stjarnan á sænska glæpasagnahimninum.“ – Allt for damerne
„Ógnvænlega vel sögð saga. Viveca Sten byrjaði vel en hún verður æ betri með hverri nýrri bók.“ – Weekendavisen
„Ég hrífst sífellt meira af skáldsögum Vivecu Sten. Syndlaus er þannig bók að maður gleymir stund og stað við lesturinn — steingleymir að búa til matinn eða fara á klósettið.“ – Barometern
„Höfundur í heimsklassa.“ – Crimezone.nl
Kilja – 416 bls.