Kiona býr á lítilli og afskekktri eyju í Suður-Kyrrahafi þar sem hún vinnur við köfun og perluvinnslu, auk þess sem hún aðstoðar móður sína í sjúkraskýlinu. Dag einn ferst lítil snekkja á rifi við eyjuna. Um borð er Svíinn Erik sem heimamenn bjarga við illan leik.
Koma hans á eyjuna verður upphaf á stórfenglegri spennu- og ástarsögu sem berst um fjórar heimsálfur. Hrífandi skáldsaga um mannleg örlög, ást og peninga, ofbeldi og yfirgang, fátækt og einangrun.
Sænski verðlaunahöfundurinn Liza Marklund hefur aldrei verið betri en í þessari kynngimögnuðu sögu sem trónað hefur í efsta sæti metsölulistanna víða um heim.
Friðrika Benónýsdóttir þýddi.
* * * * * – Stavanger Aftenblad
„Frábær.“ – Dagens Nyheter
„Stórkostleg. Spennu- og ástarsaga í senn … bók sem ekki er hægt að leggja frá sér og hætta að lesa.“ – Tara
„Marklund í toppformi.“ – Femina
„Dramatísk og æsispennandi.“ – Weekendavisen
„Liza Marklund hefur algera sérstöðu sem höfundur. Sögur hennar eru bráðsnjallar, skrifaðar af öryggi og endurspegla róttækar skoðanir hennar á þjóðfélagsmálum.“ – Henning Mankell
Kilja – 304 bls.
Útgáfuár: 2019