Sumarhrollur <br><small><i> Quentin Bates</i></small></p>

Sumarhrollur
Quentin Bates

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Glæpasaga sem gerist á Íslandi

Í sumarlok verður meinleysislegur smiður, sem stundum tekur að sér verkefni á mörkum gráa hagkerfisins, aðgangshörðum handrukkara að bana í nauðvörn og felur líkið. Handrukkarans er saknað, mannshvarf tilkynnt til lögreglu og rannsóknarlögreglumennirnir Gunnhildur og Helgi fá málið í sínar hendur.

En hinn horfni átti einnig sína félaga úr undirheimum sem nú vilja jafna metin og einn þeirra fer að leita að morðingjanum. Brátt er lögreglan á hælum beggja manna en smiðurinn er alltaf skrefinu á undan. Mun hann sleppa úr netinu sem stöðugt þrengist að honum?

Helgi Ingólfsson íslenskaði.

Sumarhrollur er fimmta bókin um lögregluforingjann Gunnhildi sem kemur út á íslensku. Fyrri bækurnar fjórar – Á hálum ís, Bláköld lygi, Helköld illska og Kuldagustur – hafa fengið hinar bestu viðtökur.

Enski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Quentin Bates hefur tekið ástfóstri við Ísland og sögusvið allra glæpasagna hans er á Íslandi.

„Glæpasögur í hæsta gæðaflokki, vel skrifaðar,  snjall söguþráður og sannfærandi lýsingar á vinnubrögðum lögreglu.“ – The Times

 „Fangar hinn kalda anda norrænu glæpasögunnar ... Aðdáendur Arnaldar Indriðasonar munu vilja bæta Quentin Bates á leslistann.“ – Eurocrime

Kilja – 172 bls.

Útgáfuár: 2024