Sænski skerjagarðurinn vekur hlýjar tilfinningar í hjörtum allra sem þangað hafa komið. Og ekki síður lesenda glæpasagnaflokksins Morðin í Sandhamn eftir Vivecu Sten eða horft á sjónvarpsþættina sem byggðir eru á bókunum.
Í þessari dásamlegu matreiðslubók býður Viveca Sten upp á girnilegt sýnishorn af fjölbreyttri matarhefð á eyjum skerjagarðsins. Þótt Sandhamn sé miðpunktur frásagnarinnar leiðir Viveca lesendur einnig til fagurra eyja í útjaðri skerjagarðsins og lýsir gómsætri matarmenningu þeirra.
Einstök matreiðslubók, glæsilega myndskreytt, þar sem metsöluhöfundurinn Viveca Sten reiðir fram ómótstæðilega rétti en bregður jafnframt upp lifandi svipmyndum af lífi fólksins við hafsbrúnina í sumarblíðu sænska skerjagarðsins.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Viveca Sten er einn virtasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda. Bókaflokkar hennar, Morðin í Sandhamn og Morðin í Åre, hafa slegið í gegn.
Kilja – 192 bls.
Útgáfuár: 2026