Sonurinn <br><small><i> Michel Rostain</i></small></p>

Sonurinn
Michel Rostain

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Þessi bók fjallar ekki um dauðann – þetta er bók um lífið!

Þessi hrífandi skáld-ævisaga varð metsöubók í Frakklandi eftir að hún hreppti hin virtu Concourt-verðlaun fyrir fyrstu skáldsögu árið 2011 og hefur síðan verið þýdd á fjölda tungumála.

Í bókinni er fjallað með frumlegum og snjöllum hætti um eitt hræðilegasta áfall sem hent getur foreldra – barnsmissi. Með einstakri hógværð og fáguðum næmleik leiðir Michael Rostain okkur inn í heim flókins sambands föður og sonar sem með hæðum sínum og lægðum raskar í engu skilyrðislausri ást foreldris til barns síns.

Sonurinn hefur sterka tengingu við Ísland sem birtist lesandanum á áhrifamikinn hátt undir lok bókarinnar.

Michel Rostain (f. 1942) er kunnur tónlistarleikhússtjóri og rithöfundur í Frakklandi. Hann býr í Arles. 

Friðrik Rafnsson íslenskaði.

„Virðingarvert. mannlegt og hrífandi verk.“ – The Sunday Times

Sonurinn er bók uppfull af lífi, myrkum húmor og takmarkalausri ást. Hún hjálpar okkur að skilja hvernig við eigum að takast á við ofureflið og lifa með hinu ósegjanlega.“ – Jean-Marcel Bouguereau, ritstjóri Liberation

„Bæði hrífandi og nístandi ... höfundurinn fetar einstigið milli þess að vera ljúfsár og væminn, milli biturleika og gleði, minninga og skáldskapar.“ – Times Literary Supplement 

Kilja – 174 bls.

Útgáfuár: 2024