Sögur af Vellinum er lifandi heimild um einstakt mannlíf sem blómstraði innan og utan girðingar bandaríska varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli í meira en hálfa öld. Andstæður íslenska haftasamfélagsins og amerískra allsnægta urðu til þess að skapa ógleymanlegar sögur, skrautleg uppátæki og hinar sígildu „hjólbörusögur“.
Um leið segir í bókinnni frá vináttu, fjölskylduböndum, gleði og samheldni sem einkenndi lífið á Vellinum. Meðal annars er rakin merkileg saga þriggja kynslóða Newman-fjölskyldunnar sem tengdi Ísland og Bandaríkin með óvenjulegum hætti. Hér eru varðveittar minningar sem eru órjúfanlegur hluti af sögu Suðurnesja og sögu Íslands á síðari hluta tuttugustu aldar.
Sögur af Vellinum vekur hlátur, söknuð og forvitni um tímabil sem mótaði heilar kynslóðir. Þetta eru sögurnar sem menn sögðu hver öðrum í áratugi – og nú eru þær loks skráðar áður en þær falla í gleymsku.
Um pennann heldur sagnameistarinn Ásmundur Friðriksson, fyrrverandi alþingismaður, og gæðir frásögnina lífi með sínum fjörmikla stílsmáta.
Kilja – 404 bls.
Útgáfuár: 2026