Silfurvegurinn<br><small><i>Stina Jackson</i></small></p>

Silfurvegurinn
Stina Jackson

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Besta sænska glæpasagan 2018 – Verðlaun Sænsku glæpasagna-akademíunnar

„Ég elska allt um þessa bók. Stina Jackson hefur náð tökum á listinni að sameina spennu bókmenntalegri dýpt.“ – Lina Bengtsdotter

Fyrir þremur árum hvarf dóttir Lelle sporlaust fjarri alfaraleið í norðurhluta Svíþjóðar. Lelle hefur síðan farið á hverju sumri og ekið eftir Silfurveginum í örvæntingarfullri leit að dóttur sinni en líka til að finna frið með sjálfum sér.

Meja, stúlka á svipuðum aldri og dóttir Lelle, sest að í litlum bæ við Silfurveginn, grunlaus um þær hættur sem kunna að bíða hennar.

Með áleitnum og harmsögulegum hætti tvinnast líf Meju og Lelle óvænt saman …

Mergjuð og dulúðug glæpasaga, meistaralega stíluð, sem hlotið hefur einróma lof víða um heima.

Friðrika Benónýsdóttir þýddi.

Metsölubókin Silfurvegurinner fyrsta skáldsaga Stinu Jackson. Hún fæddist árið 1983 í Skellefteå í norðurhluta Svíþjóðar. Árið 2006 flutti hún til Denver í Colorado í Bandaríkjunum þar sem hún býr með eiginmanni sínum og litlum hundi.

 „Frábær frumraun.“ – Dagens Nyheter

„Einstaklega fallega skrifuð, áleitin og spennandi.“ – Times Crime Club

 * * * * – Extra Bladet

Kilja – 304 bls.

Útgáfuár: 2019