Síðasta sumar Klingsors eftir Nóbelsskáldið Hermann Hesse kom fyrst út árið 1919 og er einn af hápunktunum í bókmenntum þýska expressjónismans.
Í bókinni segir frá síðasta sumri í lífi listmálarans Klingsors sem reynir að sigrast á dauðanum með því að mála nýjar og sífellt djarfari myndir.
Jón Bjarni Atlason íslenskaði.
„Dásamleg nóvella.“ – Bertolt Brecht
„Að vel athuguðu máli tel ég þetta verk meðal hinna merkustu í nútíma prósa.“ – Stefan Zweig
Þýsk-svissneski rithöfundurinn, skáldið og listmálarinn Hermann Hesse (1877–1962) öðlaðist heimsfrægð fyrir skáldsögur sínar Sléttuúlfurinn og Siddharta sem báðar hafa komið út á íslensku. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1946.
Kilja – 106 bls.
Útgáfuár: 2026