Saga eiginkonunnar <br><small><i> Aida Edemariam</i></small></p>

Saga eiginkonunnar
Aida Edemariam

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í þessari bók segir frá lífi Yetemegnu, ömmu bókarhöfundar. Hún fæddist í norðurhluta Eþíópíu árið 1916. Hún mátti þola ýmsar raunir á langri ævi og barðist ótrauð fyrir réttlæti sér og sínum til handa. Það voru stormasamir tímar í Eþíópíu: einvaldur keisari tók við af lénsveldi fyrri alda, herir Mússólínis réðust inn í landið, flugvélar bandamanna vörpuðu sprengjum á það, keisaranum var steypt í blóðugri byltingu marxista og grimmileg borgarastyrjöld hófst í kjölfarið. Meðan á öllu þessu gekk sinnti Yetemegnu fjölskyldu sinni eftir bestu getu. 

Einstök ævisaga ótrúlegrar konu sem missti aldrei kjarkinn þótt á móti blési en jafnframt einstök lýsing á mannlífi í landi sem oft er misskilið.

Aida Edemariam er eþíópsk í aðra ættina og kanadísk í hina. Hún ólst upp í Addis Ababa og nam enskar bókmenntir við háskóla í Oxford og Toronto. Hún hefur síðan starfað sem blaðamaður í New York, Toronto og London þar sem hún er nú greinahöfundur og ritstjóri við stórblaðið Guardian. Saga eiginkonunnar hreppti bæði Jerwood-verðlaunin og The Royal Society of Literature's Ondaatje-verðlaunin í Bretlandi. Aida Edemariam er búsett í Oxford.

Karl Sigurbjörnsson íslenskaði.

Kilja – 388 bls.

Útgáfuár: 2024