Refsiengill <br><small><i>Heine Bakkeid</i></small></p>

Refsiengill
Heine Bakkeid

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Thorkild Aske snýr aftur til Stafangurs eftir að lík lögreglumannsins Simons Bergeland finnst þar grafið í fjöru. Hann á ekki góðar minningar frá Stafangri. Þar fór líf hans fjandans til og hann missti vinnuna.

Fljótlega kemur í ljós að það var kannski ekki góð hugmynd að snúa aftur og gæti jafnvel kostað hann lífið. En hann verður að komast að sannleikanum. Því að ekkert sem gerðist í Stafangri á sínum tíma var eins og hann hélt að það hefði verið.

Nú er komið að uppgjöri og refsingum fyrir gamlar syndir.

Mögnuð spennusaga sem hreppti hin virtu Riverton-verðlaun 2021 sem besta glæpasaga ársins í Noregi.

Magnús Þór Hafsteinsson þýddi.

Refsiengill er fjórða bókin í frábærum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrstu bækurnar þrjár – Ég mun sakna þín á morgun, Hittumst í paradís og Við skulum ekki vaka – hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.

Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.

„Heine Bakkeid er frábær í að skapa andrúmsloft ... Hann býr til fjölbreytt persónugallerí ... Að auki kann hann að skrifa eftirminnileg samtöl ... Sagan nær hámarki í jólaveislu lögreglunnar í Stafangri sem lesendur munu seint gleyma.“ –  Verdens Gang

Kilja – 500 bls.