
Guðleysingjar og vantrúarmenn eru fyrirferðarmiklir í fjölmiðlum nútímans, sbr. þá miklu athygli sem bók hins heimsþekkta vísindamanns Richards Dawkins, The God Delusion (Ranghugmyndin Guð), hefur vakið
Í þessari bók, Ranghugmynd Richards Dawkins, takast hjónin Alister McGrath, prófessor í trúarbragðasögu við Oxford-háskóla, og Joanna Collicut McGrath, trúarbragðasálfræðingur, á við hugmyndir Dawkins og hlífa honum hvergi.
Er trú vitleysa? Eiga vísindin og trúarbrögðin í ævarandi baráttu? Eiga vísindin og trúarbrögðin í ævarandi baráttu? Geta vísindin skýrt rætur kristindómsins? Er kristindómurinn einfaldlega verkfæri hins illa?
Þetta eru meðal annars þær spurningar sem McGrath-hjónin glíma við í þessari þörfu bók.
Kilja – 124 bls.
Útgáfuár: 2010