
DRAUAGSTOFAN 3
Það er draugagangur á bóndabænum Hagakoti. Á næturnar kemur draugur og hleypir hesti Róbertós Gonzales úr haganum. Þetta hefur gerst ítrekað en bara þegar það er þoka … Róbertó leitar til Eddu og Krumma á Draugastofunni um hjálp. Hvað vill draugurinn eiginlega? Og hvers vegna fer hesturinn alltaf að fossinum?
Ráðgátan um háskalegu þokuna er þriðja bókin í bókaflokki Kristinu Ohlsson um Draugastofuna. Ríkulega myndskreytt hlýlegum teikningum eftir myndhöfundinn Moa Wallin. Bíðið spennt eftir næstu bók í röðinni: Ráðgátunni um ógurlega lestraslysið.
Kristina Ohlsson er einn vinsælasti spennusagnahöfundur Norðurlanda. Barna- og ungmennabækur hennar (fyrir 6–13 ára) hafa líka slegið í gegn og verið þýddar á fjölda tungumála.
Tinna Ásgeirsdóttir þýddi.
Innbundin – 112 bls.
Útgáfuár: 2025