Pyntingamamman <br><small><i>Ryan Green</i></small></p>

Pyntingamamman
Ryan Green

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.299 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.299 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

SÖNN SAKAMÁL 5

Hrollvekjandi saga um frelsissviptingu, misþyrmingar og morð

Í júlí 1965 var unglingnum Sylvíu Likens komið fyrir í fóstri hjá Gertrude Baniszewski í borginni Indianaapolis í Indiana-ríki í Bandaríkjunum. Gertrude var einstæð móðir sjö barna og vann meðal annars fyrir sér með því að taka börn í fóstur.

Á heimilinu réðu börnin sér mikið sjálf og myndaðist þar eins konar stigveldi félagslegs darwinisma þar sem hinir sterku drottnuðu yfir hinum veikbyggðu.

Í október 1965 fannst illa útleikið lík Sylvíu í kjallaranum. Hún hafði verið svelt og barin sundur og saman. Á líkinu voru skelfileg brunasár og orðin „Ég er hóra og stolt af því“ höfðu verið rist á kvið hennar.

Kom í ljós að Gertrude hafði stjórnað pyntingunum og að lokum morðinu á Sylvíu en börnin höfðu að mestu séð um misþyrmingarnar.

Mál þetta vakti mikinn óhug um gervöll Bandaríkin. Yfirvöld í Indiana sögðu að pyntingarnar sem Sylvía hefði mátt þola væru versti glæpur sem framinn hefði verið gagnvart einstaklingi í sögu ríkisins.

Ragnar Hauksson þýddi.

„Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann að þátttakanda í henni.“ – Blackbird

*  *  *  *  *

„Ég get ekki beðið eftir að lesa meira eftir þennan höfund.“ – amazon.com

Kilja – 182 bls.

Útgáfuár: 2022