Orrustan um Salajak <br><small><i>Johan Theorin</i></small></p>

Orrustan um Salajak
Johan Theorin

Translation missing: is.products.product.regular_price
5.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
5.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Jarmalandskrónikan – 1. hluti

Í fjallakastalanum Salajak, langt norður í landi, vakna vættirnar og breiða út vængi sína eftir langan vetrardvala. Þær hungrar í kjöt, ferskt kjöt ... Á sama tíma strjúka þrír bræður að heiman til að ganga til liðs við árásarherinn sem á að stöðva vættina og binda enda á illvirki þeirra. Þeir ferðast með hernum að Jarmalandi, hyldýpinu handan við Salajak, þar sem gyðjan Hel ræður ríkjum.

Orrustan um Salajak gerist í Svíþjóð á fjórtándu öld og er fyrsta bókin af fjórum í Jarmalandskrónikunni. Æsispennandi fantasía þar sem hetjurnar ungu hverfa út í kalda og myrka veröld til að berjast við vætti, álfa og lindorma með hugprýðina eina að vopni.

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

„Minnir áþreifanlega á Game of Thrones ... Johan Theorin fléttar saman norrænni goðafræði, göldrum og lífinu á miðöldum í blæbrigðaríkri frásögn.“ – Dagens Nyheter

„Frábærlega góð og sannfærandi saga, ótrúlega spennandi.“ – Tidningen Kulturvinden

Innbundin – 362 bls.

Útgáfuár: 2021