Örlög kringum sveima <br><small><i>Guðfinna Ragnarsdóttir</i></small></p>

Örlög kringum sveima
Guðfinna Ragnarsdóttir

8,999 kr
8,999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Örlög kringum sveima fjallar um fólk og líf þess – ástir og átök, vonir og vonbrigði, velgengni og mótlæti, gleði og sorg. Hér eru raktar sögur fólks sem hvert með sínum hætti hefur markað spor í lífinu og skilið eftir sig minningar sem vert er að varðveita.

Höfundurinn fetar slóð genginna kynslóða og dregur saman brot úr lífi þeirra: uppruna, ættartengsl, búsetu, skapgerð og örlög. Smám saman raðast púslbitarnir saman og fortíðin tekur á sig skýrari mynd. Þar flétt-ast saman skráðar heimildir, frásagnir og minningar sem varðveist hafa frá einni kynslóð til annarrar.

Úr verður litrík mynd af mannlegu lífi og ólíkum örlögum – og um leið áminning um að enginn fer um heiminn án þess að skilja eftir sig slóð. Allir eiga sér sögu – og í sögum þeirra sem á undan okkur fóru leynist einnig brot af okkar eigin.

Guðfinna Ragnarsdóttir er jarðfræðingur frá Stokkhólmsháskóla og blaða-maður frá Journalisthögskolan í Stokkhólmi. Hún kenndi við Menntaskólann í Reykjavík í nær þrjá áratugi og var ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Sagnaþætti Guðfinnu, þar sem hún lýsir lífi alþýðufólks víða um land, og minningabókina Á vori lífsins. 

Innbundin – 356 bls.

Útgáfuár: 2026