Eftir mikið óveður á Orkneyjum finnst lík Archie Stout. Hann hafði verið myrtur. Morðvopnið finnst skammt frá, steinn með fornum áletrunum. Archie var litríkur persónuleiki og naut vinsælda. Dauði hans er áfall fyrir samfélagið.
Lögregluforinginn Jimmy Perez býr nú á Orkneyjum ásamt sambýliskonu sinni og syni. Hann er fljótur á vettvang morðsins enda var Archie æskuvinur hans.
Perez hefur samlagast lífi eyjarskeggja. Sumir þeirra eru þjakaðir af myrkum skuggum fortíðar sem geta jafnvel leitt til morðs.
Á þessum eyjum, sem byggðar hafa verið í meira en 8.000 ár og sagan andar við hvert fótmál, verður Perez að hafa hraðan á til að koma í veg fyrir að morðinginn láti til skarar skríða á ný ...
Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.
Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjann Jimmy Perez, sem gerast á Hjaltlandseyjum (Shetland), hafa slegið í gegn. Breska ríkissjónvarpið, BBC, hefur gert vandaða sjónvarpsþætti eftir sögunum sem njóta mikilla vinsælda.
„Stórkostleg. Ann Cleeves er algjör snillingur.“ – Marian Keyes
„Cleeves er ... hin nýja drottning sakamálasagnanna.“ – Sunday Mirror
Kilja – 410 bls.
Útgáfuár: 2026