Á ísköldum vetrardegi hverfur sænski dómsmálaráðherrann sporlaust við þinghúsið í Stokkhólmi. Engu er líkara en að jörðin hafi gleypt hann. Lögregluforingjanum Fabian Risk er falið að rannsaka hvarf hans. Hinum megin Eyrarsunds finnst eiginkona frægrar sjónvarpsstjörnu myrt á heimili sínu rétt fyrir norðan Kaupmannahöfn. Rannsókn málsins beinir dönsku lögreglukonunni Dunja Hougaard yfir til Svíþjóðar. Smám saman kemur í ljós að málin tengjast — og ískyggilegur samsærisvefur blasir við.
GÆTIR ÞÚ DREPIÐ FYRIR ÞANN SEM ÞÚ ELSKAR?
Níunda gröfin er önnur bókin um lögregluforingjann Fabian Risk. Fyrsta bókin, Fórnarlamb án andlits, sló í gegn víða um heim. Níunda gröfin gerist sex mánuðum áður en atburðirnir sem sagt er frá í Fórnarlambi án andlits.
Sænski verðlaunahöfundurinn Stefan Ahnhem er kunnur fyrir sjónvarps- og kvikmyndahandrit sín. Bækur hans um lögregluforingjann Fabian Risk njóta mikilla vinsælda víða um heim.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„Loksins sannur arftaki Stiegs Larssons.“ — NDR Radio, Þýskalandi
„Minnir á Mankell þegar hann var upp á sitt besta.“ — Sunday Times
„Meistaralegur söguþráður, viðurstyggileg morð og hrollvekjandi spenna.“ — Better Reading
„Stórkostlegt og vandað verk.“ — Daily Mail
Kilja – 552 bls.
Útgáfuár: 2017