Niðurskurður og dauði <br><small><i>Helgi Sigurðsson</i></small></p>

Niðurskurður og dauði
Helgi Sigurðsson

8,999 kr
8,999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

ÁFALLASAGA

Í aldanna rás var sauðfjárbúskapur undirstaða íslensks samfélags og mótaði líf og afkomu þjóðarinnar. En búskapnum fylgdu áföll, svo sem eldgos og harðindi en ekki síst skæðir sauðfjársjúkdómar sem gátu á skömmum tíma ógnað afkomu heilu byggðarlaganna.

Í þessari bók fjallar dr. Helgi Sigurðsson, dýralæknir og sagnfræðingur, um þessi áföll, allt frá fjárkláðanum fyrri og Móðuharðindunum til bráðapestarinnar, sunnlenska fjárkláðans, karakúlsjúkdómanna og glímunnar við riðuveiki.

Niðurstöður dr. Helga sæta tíðindum. Hann færir meðal annars rök fyrir því að fyrri fjárkláðinn hafi verið veirusjúkdómur en sunnlenski fjárkláðinn bakteríusjúkdómur. Þá fjallar hann um hinn hæggenga  veirusjúkdóm sem olli mæðiveikinni og einnig þurramæðinni.

Innbundin – 398 bls.

Útgáfuár: 2026