
Kate Ekberg er glæsileg og hörkudugleg, eigandi vinsæls næturklúbbs í Stokkhólmi. Út á við virðist henni ganga allt í haginn. Enginn veit hins vegar að hún er beitt fjárkúgun.
Jakob Grim er alvörugefinn bankamaður sem er lítt gefinn fyrir að láta í ljós tilfinningar sínar. Þangað til hann kynnist Kate.
Eitthvað gerist þegar þessir andstæðu pólar hittast og úr verður æsilegt ástarævintýri. Gæti það þróast í varanlegt samband?
Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.
Tilnefningar: · Ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð · Besta ljúflestrarbókin á Storytel í Svíþjóð
Sænska ástarsögudrottningin og femínistinn Simona Ahrnstedt hefur slegið rækilega í gegn með hispurslausum bókum sínum. Næturdrottningin er fjórða sjálfstæða bókin í seríunni Seiðmagn andstæðnanna en fyrstu þrjár bækurnar, Allt eða ekkert, Bara aðeins meira og Með hjartað að veði, fengu frábærar viðtökur.
★ ★ ★ ★ „Simona Ahrnstedt býður upp á lostafulla rómantík í næturlífi Stokkhólms.“ – Femina
„Ég elska bækur Simonu Ahrnstedt.“ – Marian Keyes
„Ef þú færð eina af bókum Simonu Ahrnstedt í hendur veistu ekki hvað tímanum líður fyrr en þú ert komin á blaðsíðu 300.“ – Dagens Nyheter
Kilja – 398 bls.
Útgáfuár: 2025