Mínus átján gráður<br><small><i>Stefan Ahnhem</i></small></p>

Mínus átján gráður
Stefan Ahnhem

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

 Á heitum sumardegi í Helsingjaborg ekur bíll á fleygiferð fram af bryggjusporða, beint ofan í ískaldan og dimman sjóinn. Lögreglan fiskar upp lík ökumannsins. Það reynist vera af ungum milljónamæringi úr tæknigeiranum. Við fyrstu sýn virðist hann hafa fyrirfarið sér. En við krufningu kemur í ljós að maðurinn var dáinn áður en bíllinn fór í sjóinn. Hann hafði verið drepinn með óhugnanlegum hætti tveimur mánuðum fyrr, en líkaminn frystur — við mínus átján gráður!

Bækur sænska verðlaunahöfundarins Stefan Ahnhem um lögregluforingjann Fabian Risk hafa slegið í gegn og þykja með allra bestu glæpasögum síðari ára. Mínus átján gráður er þriðja bókin í flokknum um Fabian.

Elín Guðmundsdóttir þýddi.

„Enn meira spennandi en Jo Nesbo ...“ – Tony Parsons

„Minnir á Mankell þegar hann var upp á sitt besta.“ – Sunday Times

„Spenna út í gegn ... Frábær og brjálæðislega æsileg lestrarreynsla.“ – Litteratursiden

„Loksins sannur arftaki Stiegs Larssons.“ – NDR Radio, Þýskalandi

Kilja – 503 bls.

Útgáfuár: 2018