Logarnir <br><small><i> Lina Bengtsdotter</i></small></p>

Logarnir
Lina Bengtsdotter

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Eftir örvæntingarfullt símtal frá æskuvinkonu sinni, Katju, neyðist Vega til að snúa heim til litla þorpsins Silverbro sem hún yfirgaf fyrir tíu árum. Katja og Vega voru óaðskiljanlegar í æsku en átakanlegur atburður varð til þess að leiðir skildi.

Þegar Vega kemur til Silverbro reynist Katja vera horfin sporlaust. Hvarf hennar minnir óneitanlega á hvarf frænku Katju sem hvarf á unglingsárum fyrir meira en þrjátíu árum.

Hvað hefur komið fyrir Kötju? Tengist hvarf hennar á einhvern hátt hvarfi frænku hennar? Mun Vega finna Kötju áður en það er um seinan?

Eða mun gamalt leyndarmál þeirra opinberast og eyðileggja líf Vegu? 

Sænski verðlaunahöfundurinn Lina Bengtsdotter sló í gegn með bókinni Annabelle sem komið hefur út í íslenskri þýðingu.

Sigurður Þór Salvarsson íslenskaði.

„Myrkur húmor, sannfærandi persónusköpun og frábær texti gerir skáldsögur Linu Bengtsdotter að sannkallaðri lestrarveislu.“ – Camilla Läckberg

„Bækur Linu Bengtsdotter eru fagrar, myrkar og gersamlega heillandi. Ég elska þær.“ – Katrine Engberg

„Snilldarlega samin glæpasaga.“ – Aftonbladet

Kilja – 335 bls.

Útgáfuár: 2024