Í notalegu hverfi í París – borg ástarinnar – er lítið kökuhús sem bíður eftir því að verða uppgötvað. Rómantík gæti alveg verið þar á matseðlinum …
Nína Hadley ólst upp með fjórum eldri bræðrum. Þegar henni bauðst að flytjast til Parísar og hjálpa til á sætabrauðsnámskeiði var hún spennt að segja au revoir við hina ráðríku bræður sína.
Það var bara eitt vandamál. Kökugerðarmeistarinn í París var besti vinur eins bróðurins og þar að auki maður sem hún elskaði í laumi.
Það var því ekki bara girnilegt sætabrauð, fíngerðar makkarónur og glæsilegar tertur sem freistaði í litla kökuhúsinu í París …
Kristín V. Gísladóttir íslenskaði.
Ummæli lesenda:
„Créme de la créme ljúflestrarkonfektsins.“ – „Ég elskaði þessa bók.“ – „Sannkallaður unaðslestur.“ – „Enn einn gimsteinninn í þessari seríu.“
Kilja – 413 bls.
Útgáfuár: 2024