Krókódíllinn <br><small><i> Katrine Engberg</i></small></p>

Krókódíllinn
Katrine Engberg

Translation missing: is.products.product.regular_price
Uppseld
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Ung kona er myrt með hrottafengnum hætti á heimili sínu í Kaupmannahöfn. Lögregluforingjunum Jeppe Kørner og Anette Werner er falin rannsókn málsins. Í fyrstu beinist grunur að leigusala ungu konunnar, Esther de Laurenti. Hún er með glæpasögu í smíðum og hefur gert ungu konuna að einni sögupersónu í sögunni þar sem hennar bíða svipuð örlög og í veruleikanum. En skuggar fortíðar leiða rannsóknina brátt á rétta braut þótt ískyggileg atvik setji óvænt strik í reikninginn.

Fyrsta bókin í mögnuðum glæpasagnaflokki um lögregluforingjana Jeppe Kørner og Anette Werner. Bækurnar hafa slegið í gegn og vermt efstu sæti vinsældalista víða um heim.

Þórdís Bachmann þýddi.

„Hvílík frumraun! Ég dáist að persónusköpuninni, leiftrandi stílnum og lýsingunum á Kaupmannahöfn. Camilla Läckberg

„Það er ekki oft sem fyrsta bók höfundar hittir svona glæsilega í mark.“ Sara Blædel

„Ótrúleg frumraun. Katrine Engberg hefur skapað ógleymanlegar sögupersónur og bráðsnjall og óvæntur söguþráðurinn mun hrífa alla unnendur glæpasagna.“ Kathy Reichs

 Kilja – 332 bls.

Útgáfuár: 2021