Krimmasmásögur – Kilja <br><small><i> Ragnhildur Bragadóttir</i></small></p>

Krimmasmásögur – Kilja
Ragnhildur Bragadóttir

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Bráðsmellnar kósíglæpasögur!

Hvenær drepur maður mann og hvenær ekki? Hér segir af breyskum karakterum og fólki sem verður öðrum að bana – í grandaleysi.

Að baki búa ýmsar ástæður: heift, hatur, hefnd, öfund, afbrýðisemi og logsár girnd, græðgi, árátta, spilling en líka óyndi, andúð og útskúfun. 

Þetta eru svonefndar kósíglæpasögur, stuttar með húmorísku ívafi, nema síðasta sagan sem segir frá morðfýsn raðmorðingja í anda Axlar-Björns.

Höfundur skrifar af lipurð í laufléttum stíl.

Ragnhildur Bragadóttir er sagnfræðingur og upplýsingafræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem skjalastjóri, þýðandi og ritstjóri. Hún hefur áður sent frá sér skáldsögun Klökkna klakatár.

Kilja – 136 bls.

Útgáfuár: 2026