SÖNN SAKAMÁL 8
Sönn saga um útlaga, morðingja og mannætu
Árið 1850 hélt Boone Heim á vit gullæðisins í Kaliforníu eftir að hafa skilið við konu sína og komist margsinnis í kast við lögin. Frændi hans einn ætlaði að slást í för með honum en þegar sá skarst úr leik á síðustu stundu missti Heim stjórn á sér og drap hann. Hann var í kjölfarið lagður inn á geðveikrahæli. En honum tókst að sleppa út af hælinu og hélt síðan ótrauður af stað vestur á bóginn.
Á leiðinni hikaði hann ekki við að drepa ferðafélaga og þá sem stóðu í vegi fyrir honum. Jafnframt tók hann upp á því að leggja þá sér til munns eftir drápin. Þetta spurðist og fékk hann viðurnefnið Kentucky-mannætan. Loks komst hann til Kaliforníu þar sem lög og regla voru enn af skornum skammti. Í villta vestrinu fékk villimennska Heims að njóta sín um skeið.
Kentucky-mannætan er áhrifamikil frásögn af blóðugum ferli morðingjans og mannætunnar Boones Heim. Eins og í fyrri bókum skrifar Ryan Green á kraftmikinn og lifandi hátt eins og í bestu spennusögu.
Ragnar Hauksson þýddi.
„Þetta var eins atriði úr verstu martröð, ég held að enginn okkar hafi getað ímyndað sér það sem við sáum.“ – Ástralskur lögreglumaður
„Ryan Green er ótrúlegur sagnamaður ... hann segir ekki aðeins söguna eins og hún gerðist heldur gerir lesandann nánast að þátttakanda í henni.“ – Blackbird
* * * * * „Ég get ekki beðið eftir að lesa meira eftir þennan höfund.“ – amazon.com
Kilja – 181 bls.
Útgáfuár: 2023