Ástin var ekki ofarlega í huga Mimi þegar hún fór að heimsækja pabba sinn í litlu þorpi í Cotswolds á Englandi. Og það var ekkert rómantískt við fyrstu fundi hennar og Cal sem hún hitti í þorpinu. En Mimi gat ekki annað en heillast af honum.
Fjórum árum síðar liggja leiðir þeirra saman á ný í London. Sem fyrr eru þau upptekin af öðru en hugsanlegu sambandi sín á milli. Og lífið setur strik í reikninginn með sínum óúreiknanlegu vendingum.
Samt hittast þau aftur og aftur. Mun rétta stundin nokkru sinni renna upp?
Snjólaug Bragadóttir þýddi.
„Drottning hinna ljúfu og hrífandi ástarsagna.“ – Red Online
„Einn af mínum eftirlætishöfundum.“ – Katie Fforde
* * * * * „Þessi bók ætti að vera skyldulesning fyrir alla sem eru daprir í bragði.“ – Veronica Henry
Kilja – 392 bls.
Útgáfuár: 2023