Jón Gunnarsson<br><small><i>Jakob F. Ásgeirsson</i></small></p>

Jón Gunnarsson
Jakob F. Ásgeirsson

Translation missing: is.products.product.regular_price
3.999 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
3.999 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Fáir menn hafa markað jafndjúp spor í atvinnusögu Íslendinga á tuttugustu öld og Jón Gunnarsson, húnvetnski sveitastrákurinn sem lauk verkfræðiprófi frá Massachusets Institue of Technology (MIT) árið 1930.

Hann var framkvæmdastjóri Síldarverksmiðja ríkisins á þeim árum þegar síldarvinnsla var mikilvægasti útflutningsatvinnuvegur landsmanna. Síðar byggði hann upp nánast af eigin rammleik stærsta fyrirtæki Íslendinga í útlöndum, Coldwater Seafood Corporation, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum. Með viðamiklu sölustarfi skapaði hann íslenskum sjávarafurðum nafn á stærsta markaði heims. Það lagði grunn að uppbyggingu hraðfrystiiðnaðar sem áratugum saman var burðarás íslensks atvinnulífs og grundvöllur hagvaxtar í landinu.

En hver var hann, þessi mikli brautryðjandi?

Þessi bók segir sögu hans.

Innbundin – 400 bls.

Útgáfuár: 2018