![Jólaandinn <br><small><i>Guðjón Davíð Karlsson - Gói</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/products/Jolaandinn-Stor_{width}x.jpg?v=1590085240)
Jólin nálgast. En Ari litli hlakkar ekki til. Foreldrar hans hafa aldrei tíma til neins. Besti vinur Ara, bangsinn Bjössi, er staðráðinn í að finna hinn sanna jólaanda svo að Ari verði glaður fyrir jólin. Hann heldur af stað einsamall út í nóttina...
Leikarinn góðkunni, Gói, bregður sér hér í hlutverk rithöfundarins. Faðir hans, Karl Sigurbjörnsson biskup, myndskreytir söguna.
Innbundin – 26 bls.
Útgáfuár: 2013