Völd, virðing og metnaður takast á í skuggalegu ráðabruggi þegar varaformaður konunglega sænska lystisnekkjuklúbbsins er skotinn til bana við upphaf stærstu kappsiglingakeppni á Norðurlöndum.
Í innsta hring er önnur bókin í röð glæpasagna sem gerast í Sandham, einni af sumarleyfisperlum skerjagarðsins fyrir utan Stokkhólm. Fyrsta bókin, Svikalogn, fékk afbragðs viðtökur íslenskra lesenda og nýjasta bókin fór strax í 1. sæti metsölulistans í Sviþjóð. Í aðalhlutverkum eru rannsóknarlögreglumaðurinn Thomas og æskuvinkona hans, lögfræðingurinn Nóra, sem dvelur í eynni á sumrin.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
Kilja – 432 bls.
Útgáfuár: 2020