Fimm rauð kerti á köku. Eftirvænting í lofti. Zana átti sér einskis ills von og það hvarflaði ekki að henni að þessi dagur myndi breyta öllu. Það eina sem hún óskaði sér var að syngja: „Hún á afmæli í dag!“
Þegar yfirlögregluþjónninn Ewert Grens kemur í íbúðina í Stokkhólmi fyllir óþefur vit hans. Hann á aldrei eftir að gleyma því sem blasir við honum. Tveimur áratugum síðar kemur hann aftur í sömu íbúð. Illræmd öfl hafa snúið aftur og eru að leita að Zönu. Öllu skiptir að lögreglan verði fyrri til að finna hana.
Sænskur háspennutryllir í hæsta gæðaflokki um hefnd og svik eftir höfund metsölubókarinnar Þrír tímar.
Elín Guðmundsson íslenskaði.
Tilnefning: Bók ársins í Svíþjóð 2020 – Besta glæpasagan á Storytel í Svíþjóð 2019
★★★★★★ – Jyllands-Posten
„Skyldulesning allar unnenda norrænna glæpasagna.“ – Publishers Weekly
„Þessi æsispennandi bók reyndist vera einstaklega hressandi lestur, því að í henni er enginn raðmorðingi, ekkert lík af ljósku og engir sjúkdómar. Þetta er glæpasaga um alþjóðlega vopnasölu og hvernig hún tengist Svíþjóð, uppfull af æsilegum og óvæntum atvikum.“ – Sofi Oksanen
„Roslund hefur aldrei verið betri.“ – Jyllands-Posten
„Meistaraþriller. Hrottaleg, hrífandi, gáfuleg. Ég stóð bókstaflega á öndinni.“ – Liza Marklund
Kilja – 511 bls.
Útgáfuár: 2021