Thorkild Aske, fyrrverandi yfirmaður í innra eftirliti norsku lögreglunnar, er ráðinn til starfa hjá Millu Lind, frægum norskum glæpasagnahöfundi. Milla segist vinna að nýrri glæpasögu sem byggist á raunverulegum atburðum þegar tvær stúlkur hurfu með dularfullum hætti af munaðarleysingjahæli. Thorkild verður fljótlega ljóst að ekki er allt sem sýnist, enda var forveri hans í starfinu hjá Millu Lind myrtur.
Hittumst í paradís er önnur bókin í magnþrungnum spennusagnaflokki um lögregluforingjann Thorkild Aske sem er af íslenskum ættum. Fyrsta bókin, Ég mun sakna þín á morgun, kom út 2020.
Norski rithöfundurinn Heine Bakkeid hefur fengið mikið lof fyrir glæpasögur sínar sem hafa verið þýddar á fjölda tungumála.
Magnús Þór Hafsteinsson þýddi.
„Hinn nýi Jo Nesbö.“ – Verdens Gang, Noregi
„... svo spennandi að það er erfitt að leggja bókina frá sér.“ – Unni Lindell
„Stephen King hefur eignast arftaka í Noregi!“ – Extra Bladet, Danmörku
Kilja – 400 bls.
Útgáfuár: 2021