Ungur Austurríkismaður fer til Bandaríkjanna til að jafna sig eftir hjónaskilnað. Fljótlega verður hann þess áskynja að fyrrverandi eiginkona veitir honum eftirför. Hann leggur á flótta og hún eltir hann – eða elta þau hvort annað? – um Bandaríkin þver og endilöng. Býr ást eða hefndarhugur að baki? Það er óljóst eins og svo margt í þessari mögnuðu bók sem er allt í senn ferðasaga, spennusaga og skemmtisaga.
Árni Óskarsson þýddi.
„Hvað varðar kraft, sýn og dýpt er Peter Handke mikilvægasti rithöfundurinn sem komið hefur fram á sjónarsviðið eftir Beckett.“ – Saturday Review
„Handke, formbrjóturinn, hinn áhrifamikli brautryðjandi, hefur skrifað stórfenglega ástarsögu í anda stórra fyrirmynda.“ – Der Bund
„Einn frumlegasti og mest ögrandi rithöfundur samtímans.“ – The New York Times
Kilja með flipum – 201 bls.
Útgáfuár: 2021