Hvað merkir það að koma heim? Hvað er heimili? Hvað er fjölskylda? Í þessari lágstemmdu en áleitnu skáldsögu er brugðið upp áhrifamikilli mynd af heimili og fjölskyldulífi þar sem ekkert er sem sýnist — undir yfirborðinu leynast tortryggni og fordómar, skinhelgi og skömm, en líka blessun, gleði og náð..
Heima er sjálfstætt framhald skáldsögunnar Gilead sem kom út í íslenskri þýðingu á síðasta ári.
Karl Sigurbjörnsson þýddi bókina.
Metsöluhöfundurinn Marilynne Robinson er einn virtasti rithöfundur samtímans og bækur hennar hafa hlotið öll helstu bókmenntaverðlaun Bandaríkjanna.
„Einstök … jafnvel meira afrek en Gilead.“ – The New York Review of Books
„Stórkostlega hrífandi.“ – The New Yorker
„Afburðagóð og oft átakanlega fyndin hugleiðsla um frelsun." – Vogue
„Ægifögur.“ – The New York Times Book Review
ORANGE-VERÐLAUNIN 2009.
THE LOS ANGELES TIMES-FAGURBÓKMENNTAVERÐLAUNIN 2008.
Kilja – 443 bls.
Útgáfuár: 2019