Hefnd Charlie <br><small><i> Simona Ahrnstedt </i></small></p>

Hefnd Charlie
Simona Ahrnstedt

4.799 kr
4.799 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Lífið virðist blasa við Charlie. Hún gegnir draumastarfinu hjá uppboðsfyrirtæki, býr í fallegri íbúð, á ástríka fjölskyldu og er yfir sig ástfangin af hinum heillandi Philip. En í glæsilegri afmælisveislu sem hann heldur henni birtist lögreglan skyndilega og handtekur hana. Charlie er ranglega sökuð um alvarleg afbrot og í kjölfarið sakfelld og dæmd í fangelsi.

Þegar hún loks losnar úr fangelsinu fer hún að púsla saman vísbendingum um hvernig það gat hafa gerst að hún, sem hafði ávallt verið til fyrirmyndar og heiðarleg, skyldi dæmd saklaus í fangelsi. Hún ákveður að hefna sín á þeim sem lögðu líf hennar í rúst – og sýna enga miskunn.

Hefnd Charlie er fyrsta bókin í nýrri seríu eftir metsöluhöfundinn Simonu Ahrnstedt.

Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.

„Dásamleg lesning.“ – Dagens Boktips

„Sænska Fay Weldon býður upp á einstaklega skemmtilega afþreyingu“ – Dagens Nyheter

„Töfrandi flæði í frásögninni ... Simona er töfrapenni.“ – Bokhandlerskan

„Áhrifamikil og bráðskemmtileg spennusögulesning.“ – Dansk BiblioteksCenter

Kilja – 346 bls.

Útgáfuár: 2026