Gerlof Davidsson, gamli skútuskipstjórinn, hrökk upp um miðja nótt við barsmíð á hurðina á sjóbúðinni. Dauðhræddur strákur skjögraði inn og sagði frá skipi fullu af deyjandi sjómönnum og óðum manni með öxi.
Þetta gerðist í byrjun æsilegs sumars á Norður-Ölandi þegar tugþúsundir ferðamanna komu til eyjarinnar til að fagna Jónsmessunni. Einn ferðamannanna var að snúa heim eftir langdvöl í öðru landi til að krefjast uppgjörs á gamalli skuld — og hann skilur eftir sig blóðuga slóð.
Engan nema Gerlof grunar hver þessi ferðamaður er og hvers vegna hann vill hefna sín á heilli fjölskyldu. Gerlof er sá eini sem hefur hitt manninn áður og það var þegar þeir voru báðir ungir, stóðu í kirkjugarðinum og heyrðu högg berast úr kistu sem lá í nýtekinn gröf ...
Hinar mögnuðu og æsispennandi skáldsögur sænska verðlaunahöfundarins Johans Theorins, sem gerast á Ölandi, hafa farið sigurför um heiminn og verið þýddar á fleiri en 25 tungumál. Haugbúi er fjórða bókin í flokknum, en áður eru út komnar bækurnar Hvarfið, Náttbál og Steinblóð, sem allar hafa fengið hinar bestu viðtökur íslenskra lesenda.
Elín Guðmundsdóttir þýddi.
„Höfundur í heimsklassa.“ – Crimezone.nl
Kilja – 464 bls.
Útgáfuár: 2015