Fuglinn í fjörunni <br><small><i>Ann Cleeves</i></small></p>

Fuglinn í fjörunni
Ann Cleeves

Translation missing: is.products.product.regular_price
4.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
4.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Í Norður-Devon á Englandi, þar sem tvö fljót sameinast á leið í hafið, stendur rannsóknarlögreglumaðurinn Matthew Venn fyrir utan kirkjuna þar sem útför föður hans fer fram. Daginn sem Matthew yfirgaf trúarsöfnuðinn sem hann ólst upp í missti hann fjölskyldu sína líka.

Í sama mund og hann gengur burt frá kirkjunni hringir síminn. Lík hefur fundist á ströndinni í nágrenninu. Maður með húðflúraða mynd af stórum sjófugli á hálsinum hefur verið stunginn til bana. Matthew er falin rannsókn málsins. 

Þar með hverfur hann óvænt á vit fortíðar sinnar. Banvæn leyndarmál opinberast og hið nýja líf Matthews rekst óþyrmilega á veröld sem hann taldi sig hafa snúið baki við.

„Stórsnjöll, íhugul og afar grípandi.“  – New York Times

„Sem mikill aðdáandi Veru- og Shetland-bókanna hafði ég miklar væntingar til nýju seríunnar. Fuglinn í fjörunni fer langt fram úr þeim væntingum. Söguhetjan Mathew Venn slær í gegn. Frábær byrjun á nýrri glæpaseríu eftir Cleeves“ – Metsöluhöfundurinn David Baldacci

„Cleeves er ... hin nýja drottning sakamálasagnanna.“ – Sunday Mirror

Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði.

Ann Cleeves er einn virtasti glæpasagnahöfundur heims. Bækur hennar um lögregluforingjana Jimmy Perez (Shetland) og Veru Stanhope hafa slegið í gegn um heim allan. Í Fuglinum í fjörunni kynnir Cleeves til sögunnar nýja söguhetju, Matthew Venn, sem hefur líka slegið í gegn jafnt á prenti sem sjónvarpsþáttum.

Kilja – 419 bls.

Útgáfuár: 2024