Fórnarlambakúltúrinn <br><small><i>David G. Green</i></small></p>

Fórnarlambakúltúrinn
David G. Green

Translation missing: is.products.product.regular_price
2.499 kr
Translation missing: is.products.product.sale_price
2.499 kr
VSK er innifalinn. Sendingarkostnaður er innifalinn í verði.

Hvernig pólitískur réttrúnaður grefur undan frjálslyndishefð okkar

Í nútímasamfélaginu skjóta sífellt fleiri hópar fórnarlamba upp kollinum. Það ætti ekki að koma neinum á óvart enda njóta fórnarlömb ýmissa forréttinda umfram aðra hópa. Fórnarlömb fá bætur og þau eru vernduð með lögum fyrir gagnrýni og geta beitt lögreglu og dómstólum til þess  að kúga þá sem móðga þau. Og þá vilja allir vera fórnarlömb.

En fórnarlambavæðingin samræmist ekki okkar frjálslyndu lýðræðishefð. Hún brýtur í bága við það siðferðilega jafnrétti sem er hornsteinn frjálslyndis. Hún hefur í för með sér að menn eru ekki lengur jafnir fyrir lögum og grefur þannig undan lýðræðislegri menningu. Fórnarlambavæðingin er ógn við frjálslynt lýðræði vegna þess að hún færir fólki forréttindi sem byggjast á arfgengum einkennum. Frjálslyndisstefnan hefur um aldir boðað að ekki eigi að dæma fólk á grunni einkenna sem helgast af því hvar það fæðist heldur einstaklingsbundinna eiginleika sem eru umbreytanlegir.

Lýðræðisleg menning byggir á samræðu, málamiðlunum og sameiginlegum lærdómsferlum. Öllu þessu grefur fórnarlambavæðingin undan. Hún skiptir þjóðfélaginu í fórnarlömb og kúgara. Hún breytir pólitísku ferli í baráttu fyrir eiginhagsmunum á kostnað annarra í stað baráttu fyrir almannahag. Hún reynir að útiloka vitræna umræðu um tiltekin málefni og þar með tækifæri venjulegra borgara til að beita staðreyndum og rökum gagnvart valdboði og stjórnvaldsákvörðunum.

Dr. David G. Green er forstöðumaður bresku hugveitunnar Civitas og hefur á undanförnum árum sent frá sér fjölda bóka og blaðagreina, m.a. um endurbætur á heilsugæslu og velferðarkerfi, málefni innflytjenda, kynþáttamál, glæpi og fórnarlambamenningu.

Stórfróðleg bók um ógnvænlega þróun í frjálslyndum lýðræðisríkjum.

Kilja – 132 bls.

Útgáfuár: 2011