![Fjölmiðlar 2004 <br><small><i>Ólafur Teitur Guðnason</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/products/image_19690541-27cc-4103-99a9-7e25b9683b8e_{width}x.jpg?v=1589874926)
Áhrif fjölmiðla eru mikil, en lengst af hafa þeir búið við lítið sem ekkert faglegt aðhald. Á þessu varð markverð breyting í upphafi árs 2004 þegar Ólafur Teitur Guðnason hóf að skrifa vikulega fjölmiðlapistla í Viðskiptablaðið. Pistlar Ólafs eru snarpir og beinskeyttir og hafa vakið mikla athygli, enda hefur höfundurinn verið óhræddur við að taka kollega sína á beinið.
Hér er öllum fjölmiðlapistlum Ólafs Teits árið 2004 safnað saman. Svo mjög fór gagnrýni Ólafs Teits fyrir brjóstið á íslenskri blaðamannastétt að enginn ritdómur birtist um bókina í hinum hefðbundnu fjölmiðlum.
Er óhætt að segja að Fjölmiðlar 2004 bregði upp einstakri mynd af blaðamennsku á Íslandi á viðburðaríku ári. Í bókinni eru rakin ítarlega fjölmörg dæmi um undarleg, hæpin, vafasöm og ámælisverð vinnubrögð fréttamanna.
Kilja – 352 bls.
Útgáfuár: 2006