Eldraun Gilberts Pinfold <br><small><I>Evelyn Waugh</i></small></p>

Eldraun Gilberts Pinfold
Evelyn Waugh

7,999 kr
7,999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Gilbert Pinfold er hlédrægur, katólskur rithöfundur sem glímir við svefnleysi og ritstíflu. Í von um hvíld heldur hann í langferð með farþegaskipi. En þar fara brátt undarlegir hlutir að gerast.

Úr loftinu í káetunni berast hljóð – trylltur djass, geltandi hundar, háværar trúarsamkomur og raddir. Raddir sem tala um hann sjálfan af óþægilegri nákvæmni og óhugnanlegri nánd.

Bráðfyndin skáldsaga um raunir miðaldra rithöfundar eftir eitt af höfuðskáldum enskra bókmennta á tuttugustu öld.

Árni Óskarsson íslenskaði.

Eldraun Gilberts Pinfold er þriðja skáldsaga Evelyn Waugh sem kemur út í íslenskri þýðingu, en áður hefur Ugla gefið út Endurfundi á Brideshead (2019) og Handfylli moldar (2021).

Kilja – 192 bls.

Útgáfuár: 2026