![Ekki er allt sem sýnist <br><small><i> Stefan Ahnhem</i></small></p>](http://uglautgafa.is/cdn/shop/files/EkkieralltsemsynistFRAMAN_{width}x.jpg?v=1738425413)
Carl og Helene þráðu að komast i langt frí til að endurnýja sambandið. Þau fundu á netsíðum draumahús í Kaliforníu og höfðu húsaskipti við par sem vildi dvelja sumarlangt í einbýlishúsinu þeirra í sænska skerjagarðinum.
En þegar þau koma til Kaliforníu bregður þeim í brún. Þetta var ekki húsið sem þau höfðu hrifist af á netinu. Og hvað skyldi þetta par, sem hafði ginnt þau þangað, ætla sér fyrir í húsinu þeirra? Sem betur höfðu þau sett upp eftirlitsmyndavélar í öllum herbergjum hússins ...
Æsispennandi sálfræðitryllir sem fengið hefur frábærar viðtökur.
Elín Guðmundsdóttir íslenskaði.
Bækur sænska verðlaunahöfundarins Stefans Ahnhems um Fabian Risk þykja með allra bestu glæpasögum síðari ára. Þær eru margverðlaunaðar og hafa selst í milljónum eintaka. Í þessari bók, sem slegið hefur í gegn, er hann á nýjum slóðum.
„Sænskur sálfræðitryllir sem gripur mann strax á fyrstu síðu.“ – Hjemmet, Danmörku
„Ekki er allt sem sýnist er einn allra besti þriller sem ég hef nokkru sinni lesið. Ég mæli eindregið með henni.“ – Kulturatka, Póllandi
„Það er ómögulegt að leggja þessa bók frá sér.“ – Göteborgs-Posten
„Hrífandi og afar vandlega ofinn sálfræðitryllir sem endar þannig að maður stendur bókstaflega á öndinni.“ – Aftonbladet, Svíþjóð
„Enn meira spennandi en Jo Nesbø.“ – Tony Parsons
Kilja – 439 bls.