Einræði hf. <br><small><I>Anne Applebaum</i></small></p>

Einræði hf.
Anne Applebaum

4.999 kr
4.999 kr
VSK er innifalinn. Heimsendingarkostnaður er innifalinn í verði ef verslað er fyrir 5.000,- eða meira. Annars er það 1.500,-

Frá Moskvu til Peking, frá Teheran til Caracas hafa myndast tengsl milli stjórnvalda, auðmanna, áróðursmiðla, leyniþjónusta og alþjóðlegra viðskiptaneta sem vinna markvisst að því að styrkja einræðisstjórnir og veikja lýðræðisríki. Þetta er ekki formlegt bandalag heldur samstarf um sameiginlega hagsmuni og andstöðu við þau gildi sem einkenna frjáls og opin samfélög.

Í þessari áhrifaríku bók sýnir Anne Applebaum hvernig þetta nýja valdakerfi teygir sig um víða veröld og virðir ekki landamæri. Hún lýsir því hvernig einræðisherrar og auðkýfingar mynda spillt fjármálanet, skiptast á þjónustu og vinna að því að endurmóta alþjóðakerfið sér í hag.

Bókin er jafnframt áminning um nauðsyn varðstöðu um lýðræði, réttarríkið og einstaklingsfrelsi.

Anne Applebaum er einn þekktasti stjórnmálaskýrandi og sagnfræðingur samtímans.

Björn Bjarnason íslenskaði.

Kilja – 232 bls.

Útgáfuár: 2026